BÓKA BÁS

HAFðU SAMBAND OG BÓKAÐU SVÆÐI!

 

Þátttökukostnaður

Landbúnaðarsýningin 2022 þótti takast einstaklega vel. Bændur og búalið streymdu á sýninguna alls staðar að af landingu til að skoða nýjustu tæki og tól og meta hvers kyns þjónustutilboð. Ma fullyrða að sýningin hafi fengið fleiri gesti en nokkur önnur sýning er hefur verið haldin í Laugardalshöll. Við höldum því full bjartsýni til móts við ÍSLENSKAN LANDBÚNAÐ 2026 sem verður í Höllinni 9. – 11. október.

Básaverð og boðsmiðar: Básaverð verður kr. 24.500 p. fm. án vask og kr. 6.900 p.fm. á útisvæði. Hver sýnandi á ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2026 fær eins marga boðsmiða og hann óskar – án aukagjalds. Einnig miða fyrir starfsfólk á básum og tvo boðsmiða á opnunarhóf sýningarinnar 9. október. Þetta tilboð af hálfu Ritsýnar hefur reynst einstaklega vel á öðrum sýningum okkar við að ná til markhópa. Almennir aðgöngumiðar verða síðan til sölu við inngang á kr. 3.500 m.vsk. og kr. 2.500 m.vsk. fyrir aldraða og öryrkja. Aðgöngumiðar gilda alla sýningardagana.

Sýningarkerfi: Sýnendum er velkomið að velja á milli sýningarfyrirtækja eða koma með eigið kerfi. Ritsýn er í samvinnu við Merkingu sem er með tilboð á kerfum. Innifalið í tilboðinu er eftirfarandir: Kerfisveggir settir upp og uppsetning kappa/facia board. Einnig með nafni sýnanda á kappa og þrjú ljós. Verð kr. 9.900 p. fm. án vsk. Hafið samband við Hjördísi 620 0017 / 556 9000 syningar@merking.is  varðandi nánari upplýsingar. Athugið að Ritsýn er ekki með sýningarkerfi.

Með ykkar þátttöku er ekki að efa að í uppsiglingu er glæsileg landbúnaðarsýning á besta stað sem mun styrkja ímynd íslensks landbúnaðar.

Hafið sem fyrst samband við undirrituð varðandi möguleika á sýningarbás.

FRAMKVÆMDARSTJÓRI
Ólafur M. Jóhannesson
TÖLVUPÓSTUR
SÍMI

698 8150

MARKAÐSSTJÓRI
Inga
TÖLVUPÓSTUR
SÍMI

898 8022